Kotturutimyri

Við gerum betur fyrir alla rithöfunda þarna úti. Við vitum hvað skal gera því við höfum staðið í þeim sporum sjálf. Í stað þess að fara í gegnum alla þá leiðinlegu og ósanngjörnu vinnu við að reyna að selja handritið þitt, eftir alla erfiðisvinnuna við að klára sögu, bjóðum við þér þetta. Við lesum söguna þína fagmannlega inn, birtum söguna á hlekknum okkar KÚM á Spotify og Apple og fleiri veitum. Þá getur fólk um allan heim heyrt söguna þína. Við lesum inn á þremur tungumálum. Íslensku, ensku eða norsku. Af hverju þurfum við að lesa bók fyrst? Af hverju ekki að heyra hana? Kannski færðu símtal frá útgáfufélagi? Eða er möguleiki á kvikmyndahandriti? Gerir þú loksins kvikmyndaseríu úr handritinu þínu? Eða er möguleiki á teiknimyndaseríu? Við erum skrefið á milli góðrar sögu sem fer í skúffuna, eða týnist, og sögu sem getur orðið þekkt um allan heim. Ertu með handrit? Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar. asgeirpodcast@gmail.com Athugið! Fyrstu tíu handritin eru ókeypis. Verð. Sögur lesnar og birtar frá 5 til 30 mínutum: Verð 15.000 plús vsk (11%) (lægsta verð) 30 til 60 mín: 20.000 plús vsk 60 til 120 mín: 30.000 plús vsk 120-180 mínútur: 40.000 plús vsk

Listen on:

  • Apple Podcasts
  • Podbean App
  • Spotify
  • Amazon Music
  • iHeartRadio
  • PlayerFM
  • Podchaser
  • BoomPlay

Episodes

Sunday Mar 09, 2025

Guðjón leggur af stað í ferðalag um Ísland. Þegar blái billinn hans er skyndilega orðinn gulur og með einhyrningahorn fara ævintýrin að gerast. Guli einhyrningabíllinn er nefninlega ekkert venjulegur bíll. Hann er galdrabíll.
Guðjón og guli einhyrningabíllinn - fara til tunglsins
Höfundur : Hildur Inga Magnadóttir
Ásgeir Ólafsson Lie les

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125